Takk

Heimsækja Vef

Viðskiptavinur

Hagar

Okkar hlutverk

Ráðgjöf, hönnunarkerfi, hönnun

Tæknistakkur

React Native, NestJS - GraphQL API

Um verkefnið og markmið þess

Takk appið er nútímaleg lausn fyrir verslanir Haga sem vilja umbuna tryggum viðskiptavinum með einföldum og aðgengilegum hætti. Kerfið gerir notendum kleift að safna Takk-krónum við kaup á ýmsum vörum ásamt því að geta tekið þátt í keppnum, nýtt sérstök tilboð og fengið sérsniðin meðmæli sem byggð eru út frá kauphegðun notandans.

Náið samstarf

Verkefnið byggir á sterkri samþættingu milli kerfa. Júní þróaði miðlag sem tengir vildarkerfið meðal annars við efnis- og vörustjórnunarkerfi til að stuðla að meiri sjálfvirkni í kerfinu ásamt betri upplifun viðskiptavinarins.

Unnið var náið með tækniteymi Haga til að útfæra greiðsluflæði vildarkerfisins. Þetta tryggir að þegar kaup eru staðfest fá notendur rétt magn af Takk-krónum og að söfnun og nýting punkta virki örugglega í öllum greiðslustigum, hvort sem um er að ræða greiðslu í gegnum netverslun eða búð.

Hönnun og notendaupplifun í fremsta flokki

Á hönnunarsviðinu leiddi Júní uppbyggingu appsins frá grunni. Júní mótaði bæði UI og UX þannig að notendaupplifunin væri einföld, nákvæm og ánægjuleg — frá fyrstu uppsetningu (onboarding) til daglegrar notkunar þar sem auðvelt er að fylgjast með Takk-krónum og nýta sér tilboð.

Aðgengileg og skemmtileg nálgun

Kjarnaupplifun appsins var skipulögð kringum lykilatriði: heimaskjá með yfirliti yfir stöðu króna, auðvelt aðgengi að tilboðum og viðburðum, skýrt upplýsingaskipulag og rökrétt notendaflæði. Þessi nálgun tryggir að bæði nýir og vanir notendur geti notað appið án hindrana.

Hönnun var prófuð og ýtruð í nánu samstarfi við teymi Haga. Með notendaprófunum, endurgjöf og hraðri útfærslu breytinga tryggðum við að lausnir standist raunverulegar þarfir viðskiptavina og innkaupaferla í verslunum Haga.

Útkoman er traust, notendavæn og sveigjanleg lausn sem eykur tryggð viðskiptavina og bætir kaupupplifunina. Með samstilltu kerfi fyrir vöru- og viðskiptagögn, öruggu greiðsluflæði og faglegri hönnun er Takk-appið komið til að vera.

Senda skilaboð til hallo@juni.is