
Map of Iceland
Heimsækja Vef
Viðskiptavinur
Íslandsstofa
Okkar hlutverk
Hönnun, Forritun, Ráðgjöf, Mörkun
Tæknistakkur
Figma, Leaflet, React, Next.JS, GraphQL, Prismic, Framer-motion, Typescript, Tailwind CSS, Mapbox, Maptiler
Markmið verkefnis
Map of Iceland er gagnvirkt stafrænt kort af Íslandi og er hannað og þróað fyrir vefsíðuna Visit Iceland, sem er í eigu Íslandsstofu. Hugmyndin var að búa til skemmtilegt og notendavænt tól fyrir ferðalanga Íslands. Markmiðið með þessu verkefni var því að búa til vöru sem auðveldar ferðamönnum erlendis frá, jafnt sem heimamönnum að ferðast um landið.


Fallegt kort með notendan í fyrirrúmi
Ísland er sannkölluð náttúruperla með stórkostlegu landslagi, fallegum staðsetningum, skemmtilegum afþreyingum og gistimöguleikum fyrir ferðalanginn. Margir vita hins vegar ekki af þessum perlum og möguleikum sem liggja víðsvegar um landið. Þar af leiðandi á þetta tól að auglýsa það sem er í boði ásamt því að vera hjálpartæki fyrir alla þá sem ætla sér að ferðast til Íslands og/eða vilja læra meira um landið.
Kortið er einfalt í notkun, hefur fjölda eiginleika og er stútfullt af upplýsingum.
Kortið er hannað með hágæða myndefni og notendavænu leiðandi viðmóti. Einnig var lögð mikil áhersla á að kortið virki vel í öllum skjástærðum, þar sem markhópurinn er bæði heima við í tölvu að skipuleggja ferðina, en líka á ferðinni í síma. Kortið sjálft var hannað af ljósmyndaranum Snorra Þór Tryggvasyni, sem sýnir yfirgripsmikið yfirlit yfir landafræði Íslands og gerir notendanum kleift að sjá fyrir sér fjölbreytt landslag landsins.








Að skipuleggja ferðina þína
Map of Iceland býður upp á leitaraðgerð til að finna leið frá A til B eða einungis til að fletta upp stöðum, kennileitum eða heimilisföngum. Hægt er að smella á tiltekin svæði og fá nákvæmar upplýsingar um hvern og einn stað fyrir sig. Þessi eiginleiki er sérstaklega gagnlegur til að finna upplýsingar um ákveðna staði, svo sem lýsingar, myndir, umsagnir gesta og tengiliðaupplýsingar. Öll staðsetningarmerki (markers) á kortinu eru viðurkenndir þjónustuaðilar ferðamálastofu.


Gagnvirk upplifun og endalausir möguleikar
Einn helsti eiginleiki kortsins er gagnvirkt eðli þess. Það er að segja, kortið bíður notandanum upp á að sía út birtar viðbótarupplýsingar, svo sem gistimöguleika, ferðamannastaði, gönguleiðir, tjaldstæði, veitingastaði, bensínstöðvar og þjónustu. Þessi virkni gerir ferðamönnum kleift að skipuleggja ferðaáætlanir sínar á áhrifaríkan hátt, finna viðeigandi gistingu og/eða finna áhugaverða staði út frá óskum þeirra.

