GEO: Finnur gervigreindin fyrirtækið þitt?

Við tókum vefinn okkar nýlega í gegn með sýnileika í leitarvélum og gervigreind í huga og fengum fullt hús í Lighthouse. Það gleður auðvitað fólk eins og okkur, sem getur rætt hleðslutíma yfir heilum hádegismat. Vinnan tengist líka stærri breytingu: fólk getur nú spurt gervigreind um hvaða þjónusta henti, fengið samanburð og kannað möguleikana í samtali. Þá viljum við að réttar upplýsingar um okkur séu til staðar.

Hvítur og brúnn hundur situr fyrir framan hvítan bakgrunn.

Toggi

Skissa hugmyndir yfir kaffi

Þarna kemur GEO inn. Skammstöfunin stendur fyrir Generative Engine Optimization og snýst um að gera efni vefsins aðgengilegt og skýrt svo það eigi meiri möguleika á að nýtast í svörum gervigreindar. Ef einhver spyr hvaða fyrirtæki geti hjálpað við tiltekið verkefni, eða hvar sé hægt að fá ákveðna þjónustu, viltu auðvitað koma til greina. SEO á áfram sinn stað; góð vinnubrögð í leitarvélabestun eru líka grunnur að sýnileika í gervigreindarleit. Google útskýrir tengslin hér.

Það skemmtilega við GEO er hvað vinnan getur verið praktísk. Hugsum okkur fyrirtæki sem leigir út skrifstofuhúsnæði. Á vefnum stendur að þar sé „framúrskarandi aðstaða fyrir metnaðarfull fyrirtæki“. En er pláss fyrir tólf manns, er lyfta og hvenær er hægt að flytja inn? Þetta eru spurningarnar sem fólk þarf svör við. Þegar upplýsingarnar eru skýrar og aðgengilegar nýtast þær betur bæði fólkinu á vefnum og kerfunum sem sækja þangað efni.

Við höfum séð hversu miklu tæknin getur breytt. Í vinnu okkar fyrir Visit Iceland fór magn texta sem var aðgengilegt beint í HTML á 476 sambærilegum síðum úr um 39 þúsund orðum í rúmlega 471 þúsund orð. Fróðleikurinn var þegar til, en með endurbótunum varð mun meira af honum aðgengilegt fyrir leitar- og gervigreindarkerfi. Hér má lesa um verkefnið. Á okkar eigin vef fengum við svo fullt hús í Lighthouse, sem prófar meðal annars hraða, aðgengi og tæknileg SEO-atriði. Sú einkunn mælir vefgæði, en segir ekki hversu oft gervigreind nefnir Júní. Nánar um Lighthouse.

Þess vegna byrjar góð GEO-vinna á spurningum viðskiptavinanna og yfirferð á því hvernig fyrirtækið birtist í svörunum. Síðan skoðum við efnið og tæknina saman: hvað vantar að útskýra, hvar liggur sérþekkingin og komast kerfin að upplýsingunum? Áfram fylgjumst við með sýnileika, heimsóknum og fyrirspurnum. Enginn getur tryggt sér sæti í hverju svari, en það er hægt að bæta forsendurnar og mæla hvernig gengur.

Okkur finnst þetta spennandi tækifæri til að koma góðum fyrirtækjum nær fólkinu sem þarf á þeim að halda. Hjá Júní höfum við ráðgjöfina, hönnunina og forritunina undir sama þaki og getum bæði fundið tækifærin og unnið breytingarnar. Viltu skoða hvernig fyrirtækið þitt kemur út? Sendu okkur línu á hallo@juni.is. Við hellum upp á og byrjum á spurningunum.