Borgarsögusafn

Heimsækja Vef

Viðskiptavinur

Reykjavíkurborg og Borgarsögusafn

Okkar hlutverk

Bakendaforritun, hreyfihönnun, framendaforritun, endurmörkun, ráðgjöf og greiningarvinna, hönnun, grafísk hönnun

Tæknistakkur

Strapi CMS, Figma, Next.js, Storybook, Framer Motion, Tailwind CSS

Um verkefnið og markmið þess

Við tókum þátt í stórri hönnunarsamkeppni um vefþróun, vefhönnun og forritun á nýjum vefsvæðum Listasafns Reykjavíkur og Borgarsögusafns Reykjavíkur á vegum Reykjavíkurborgar árið 2022 og sýndum einstaklega metnaðarfulla kynningu á hugmyndum okkar fyrir vefina. Við notuðumst við tónlist í kynningu í fyrsta sinn og það sló auðvitað í gegn. Við unnum útboðið og hófumst handa við að þróa, hanna og forrita nýja vefi fyrir söfnin.

Vefur Borgarsögusafns fékk væna stafræna yfirhalningu hjá okkur, en við endurhönnuðum heildrænt yfirbragð vefsins og sáum til þess að hann yrði nútímalegri, notendavænni og fallegri á að líta. Eitt af stóru markmiðunum í þessu verkefni var að tengja vefinn við viðburðadagatal Reykjavíkurborgar og að uppfæra leitarvirkni síðunnar, sem við og gerðum. Nú er hægt að skoða alla yfirstandandi og áætlaða viðburði á vegum Borgarsögusafns á einum stað á vefnum með þægilegu og fallegu notandaviðmóti sem við hönnuðum.

Frábær upplifun til að finna listaviðburði og fræðast um söfnin - listrænt og praktískt

Við endurhönnuðum líka yfirlitssíðu fyrir allar sýningar sem safnið hefur upp á að bjóða og hefur boðið upp á í fortíðinni, og við erum nokkuð stolt af afrakstrinum.

Stundum er markmiðið að láta minna fara fyrir mörkuninni og láta virkni síðunnar njóta sín til hins ýtrasta þess í stað – og í þessu verkefni stefndum við að því að gera einmitt það.