
Basalt
Heimsækja Vef
Viðskiptavinur
BASALT arkitektar
Tæknistakkur
Framer, Figma
Um verkefnið og markmið þess
Vefur Basalt er verkefnaskrá, kynningarefni og mikilvægt samskiptatæki í senn. Þar kynna verkkaupar, samstarfsaðilar og fjölmiðlar sér verk stofunnar áður en frekara samstarf hefst. Markmiðið var að skapa vef sem dregur fram gæði verkefnanna og auðvelt er að uppfæra.


Verkin tala sínu máli
Vefurinn var byggður í Framer með áherslu á nákvæma útfærslu, góða frammistöðu og skýrt upplýsingaflæði. Verkefni stofunnar mynda kjarna vefsins og auðvelt er að skoða verkefni eftir flokkum, hvort sem leitað er að baðstöðum, íbúðarhúsum eða opinberum byggingum.


Sjálfbær efnisumsjón
Efnisumsjón var útfærð þannig að auðvelt var fyrir efnistjóra að bæta við nýjum verkefnum, fréttum og öðru efni. Vefurinn getur því þróast samhliða starfsemi stofunnar og endurspeglar á hverjum tíma nýjustu verkefni og fréttir.


