
Forseti.is
Heimsækja Vef
Viðskiptavinur
Embætti Forseta Íslands
Okkar hlutverk
Ráðgjöf, Hönnun, Forritun
Tæknistakkur
Figma, React, Next.js, Sanity CMS, Vercel
Yfirlit
Embætti forseta Íslands fékk Júní til að hanna og byggja nýjan vef fyrir forseti.is. Verkefnið snýst um að færa vefinn í nútímalegan búning án þess að missa virðuleika, og um leið að styrkja ímynd forsetans með skýrri frásögn, aðgengilegu efni og notendavænu umsýsluumhverfi.


Áskorunin
Gamall vefur og efnisflæði þurftu að mæta ólíkum væntingum:
Að sameina nútímalega framsetningu og virðuleika.
Að miðla sögu embættisins og rödd forseta til þjóðar og alheimsins.
Að opna á samtal við yngri kynslóðir, meðal annars með einföldu máli.
Að létta á álagi á skrifstofu með því að svara algengum spurningum.
Að styðja fjölbreyttar miðlunarleiðir, svo sem beinar útsendingar, myndskeið, hlaðvörp og efni af samfélagsmiðlum.


Markmið
Verkefnið var skilgreint með skýrum markmiðum:
Frásagnarvefur sem byggir á íslenskri sagnahefð og styrkir heildarímynd.
Sterk tenging við samfélagsmiðla í báðar áttir, með auðveldri deilingu og innfellingu (t.d. Instagram).
Notendavæn umsýsla með vefumsjónarkerfi sem krefst lítillar þjálfunar og virkar vel bæði í tölvu og síma.
Aðgengi og skýrleiki með efni á einföldu máli þar sem við á.


Lausnin (nálgun Júní)
Upplýsingararkitektúr og frásögn: Uppbygging og efnisstýring sem leiðir notendur í gegnum hlutverk embættisins, sögu og nútímalegt erindi.
Efnisleiðir fyrir mismunandi notendur: Skýr leið fyrir almenning og algengar spurningar, og jafnframt rými fyrir fréttir, ávörp, heimsóknir og fjölmiðlaefni.
Miðlun og lifandi efni: Undirbúningur fyrir live feed, myndskeið, hlaðvarp og innfellt efni af samfélagsmiðlum.
Deilanleiki og tengingar: Hönnun sem styður auðvelda deilingu og endurnýtingu efnis í öðrum rásum.
Einfalt vinnuferli: Skilgreind samskipta- og fundarstruktur (stöðufundir) til að halda hraða og gæðum.
Verkferli
Reglulegir stöðufundir annan hvern miðvikudag kl. 10:00.
Daglegir teymisstöðufundir kl. 9:00.




Afurðir
Nútímaleg og virðuleg hönnun í takt við gildi og áherslur.
Skýr frásagnaruppbygging sem styður við ímynd og samskipti.
Grunnur að öflugri samþættingu við samfélagsmiðla og fjölmiðlunarform.
Notendavæn umsýsla sem dregur úr flækjustigi og þjálfunarþörf.