Gervigreind hjá Júní: Verkfæri, vörur og raunveruleg notkun, æ þú veist...

Gervigreindin er er komin til að vera og er að umbreyta því hvernig við hjá Júní vinnum. Áhrif hennar eru mikil á hvernig við þróum og hönnum stafrænar vörur, hún eykur hraða og skilvirkni í okkar vinnu, býr til nýja möguleika í hönnun og myndvinnslu og eykur þjónustustig sem stafrænar vörur geta veitt.

Mynd af Guðmundi Bjarna Sigurðssyni — hönnunarstjóra Júní

GUÐMUNDUR BJARNI SIGURÐSSON

Hjá Júní höfum við því ekki nálgast gervigreind sem tískubóla eða sérverkefni. Við lítum á hana sem hluta af daglegu verkfærakistunni okkar bæði í hönnun, forritun, ráðgjöf og í vörum sem við hönnum og þróum fyrir viðskiptavini.

Í stuttu máli: við notum gervigreind sjálf, ráðleggjum fyrirtækjum hvernig á að nota hana, og þróa lausnir þar sem hún er hluti af upplifun notenda.

Gervigreind sem hluti af daglegri vinnu

Í dag er gervigreind orðin náttúrulegur hluti af vinnuflæðinu okkar.

Í hönnun hjálpar hún okkur að:

  • kanna hugmyndir hraðar
  • prófa mismunandi nálganir
  • vinna með efni og texta á skilvirkari hátt
  • vinna með myndefni

Í forritun nýtum við hana meðal annars til að:

  • flýta þróun
  • greina lausnir
  • bæta gæði kóða

En kannski mikilvægast er að hún breytir ráðgjöfinni sem við veitum.

Við erum í auknum mæli að hjálpa fyrirtækjum að svara spurningum eins og:

  • Hvar skiptir gervigreind raunverulega máli í þjónustunni okkar?
  • Hvernig getum við notað hana án þess að flækja upplifunina?
  • Hvað ætti að vera sjálfvirkt og hvað ekki?

Þetta snýst minna um tæknina sjálfa og meira um réttu notkunina á réttum stað.

Ekkert gervigreindar slor

Það er hins vegar eitt sem við reynum markvisst að forðast: Gervigreindar slor (AI-slopp)

Gervigreind getur framleitt mikið efni mjög hratt. En það þýðir ekki að það sé gott. Það sem gerist oft þegar gervigreind er notuð án skýrrar stefnu er að niðurstaðan verður:

  • generísk (generic)
  • leiðinleg
  • og lítur út eins og allt annað á netinu

Það er nákvæmlega það sem við ætlum ekki gera.

Sérfræðiþekking okkar í hönnun og forritun er það sem tryggir að gervigreind verði verkfæri ekki staðgengill fyrir fagmennsku.

Við notum hana til að:

  • flýta hugmyndavinnu
  • bæta greiningu
  • styðja við þróun

Endaniðurstaðan þarf alltaf að standast sömu kröfur og við setjum á alla hönnun og alla vöruþróun hjá Júní.

Sérstaklega í hönnun viljum við alls ekki sjá heim þar sem allt fer að líta eins út vegna þess að gervigreind spýtir út sömu lausnum aftur og aftur, án þess að hafa skoðun á hvernig þetta lítur allt saman út. Gervigreind mun aldrei koma í staðinn fyrir góðan smekk, höfum það ávallt í huga.

Góð hönnun á að vera:

  • nýstárleg
  • nytsamleg
  • auðskiljanleg
  • o.s.frv.

Dieter Rams gerði lista yfir 10 atriði sem góð hönnun á að vera sem á jafn vel við í dag og þegar hann gerði hann um 1970.

Júnó – gervigreind fyrir stafrænar þjónustur

Ein af gervigreindarlausnum Júní er Júnó.

Júnó er gervigreindarlausn sem hægt er að tengja við vefi og stafrænar þjónustur. Hún getur hjálpað notendum að finna upplýsingar, svara spurningum og leiða fólk í gegnum efni eða þjónustur.

Júnó virkar sem hefðbundin leit á vef en hún getur miklu meira en það. Þú finnur allt sem þig vantar, en þú getur í leiðinni klárað það sem þú vilt gera á vefnum í gegnum spjall við Júnó, með generative UI sem lausnin bíður upp á. Sjón er sögu ríkari.

Það sem skiptir okkur máli er að Júnó er ekki bundin við eitt módel.

Í dag byggir hún aðallega á Gemini, en arkitektúrinn er opinn þannig að hægt er að nota hvaða LLM sem hentar verkefninu:

  • Gemini
  • Chatgtp
  • Claude
  • eða önnur módel

Ásamt því að geta notað nýjustu og bestu módelin hverju sinni, skulum ekki gleyma því að þau eru að uppfærast á ljóshraða þessa dagana, þá getum við tengt Júnó við alls konar gagna uppsprettur:

  • CMS eins og Payload, Sanity og fleiri
  • innri kerfi eins og Notion, Sharepoint
  • excel skjöl
  • pdf skjöl
  • alls konar dót í raun og veru

Gervigreind þarf að passa við hönnun

Eitt sem við höfum séð aftur og aftur er að gervigreind virkar best þegar hún er hluti af góðri þjónustuhönnun.

Ef hún er sett inn án hugsunar verður hún fljótt:

  • truflandi
  • óljós
  • eða einfaldlega gagnslaus og mjög erfitt að viðhalda lausninni

Sveigjanleiki skiptir máli

Tæknin í gervigreind er að breytast mjög hratt.

Þess vegna reynum við að byggja lausnir sem eru sveigjanlegar og módel-trúleysingjar.

Þannig er hægt að skipta um módel, bæta nýjum getu eða laga lausnir að breyttum kröfum án þess að byggja allt upp á nýtt.

Það á við um Júnó — en líka um verkefnin sem við vinnum með viðskiptavinum.

Hvað næst?

Við erum rétt að byrja að sjá hvernig gervigreind mun hafa áhrif á stafræna þjónustu.

Hjá Júní munum við halda áfram að:

  • nota gervigreind í daglegu vinnunni okkar
  • þróa lausnir eins og Júnó
  • hjálpa fyrirtækjum að finna raunveruleg notkun (use-case)

Ekki vegna þess að AI sé töfralausn, heldur vegna þess að rétt notuð getur hún gert stafræna þjónustu bæði einfaldari og betri.

Ef þú vilt vita meira um Júnó getur þú skoðað lausnina hér:

https://www.juni.is/juno


Senda skilaboð til hallo@juni.is