Áramótakveðja 2024

Annáll ársins 2024

Kæru vinir, bestu þakkir fyrir frábært samstarf á árinu sem er að líða. Við vonum að hátíðirnar hafi verið ykkur gjöfular og friðsælar. 

Það var svo gaman að búa til stafræna snilld fyrir ykkur á liðnu ári og við bíðum spennt eftir því að taka upp þráðinn á því nýja.

Völundarsmíðar ársins 2024

2024 var afar gott ár hjá okkur í Júní, það stærsta frá upphafi! Ekki bara í júní, samt. Alla hina mánuðina líka. 

Við kláruðum ótal mörg spennandi og skemmtileg verkefni, gáfum út allskonar vefi, snjallar lausnir, skrifuðum skýrslur og gerðum verðmætar greiningar fyrir viðskiptavini okkar.

Skjámynd af vefsíðu Auðkennis
Auðkenni hlaut andlits- og tæknilyftingu; eftir góða þarfagreininingu leit dagsins ljós glænýr vefur
Skjámynd af Frigg verkefninu
Þróun Friggjar, kerfi um nemendagrunn á landsvísu, meira um það í næsta annál
Skjámynd af vefsíðu Listasafns Reykjavíkur
Sköpunargleðin í fyrsta sæti í nýjum vef Listasafns Reykjavíkur
Skjámynd af vefsíðu Borgarleikhússins
Borgarleikhúsið tekur yfir sviðið
Skjámynd af vefsíðu Borgarsögusafnsins
Geggjaður nýr vefur Borgarsögusafns
Skjámynd af vefsíðu Veigar
Veigar.eu í háveigum haft, vefverslun með áfengi fyrir Haga, snilld, já!
Skjámyndir af vefsíðu Ísland.is
Stafrænt Ísland – Meðmælakerfi fyrir forseta- og alþingiskosningar, erfðafjárskýrsla fyrir fyrirframgreiddan arf, hnipp, hönnunarkerfi, ökuréttindi o.fl.fl.
Skjámynd af vefsíðu Þórkötlu
Frekar fínn Framer vefur fyrir Festeignafélag Þórkötlu
Merki Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu á litríkum bakgrunni
Stafræn tækifæri nýrrar stofnunar; stefna og verkefnagreining fyrir Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Nútímaleg, margra hæða skrifstofubygging með gleri og dökkum spjöldum á móti skýjuðum himni.
Fjölmargar greiningar og vinnustofur fyrir ráðuneyti
Loftmynd af þéttbýli með hringtorg með grænum landslagi, umkringt vegum og byggingum með rauðum og gráum þökum, sem gefur til kynna skipulagða borgaruppbyggingu.
Þarfagreining og skýrsla fyrir Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Skjámynd af Orkuskipti.is
Væn uppfærsla á Orkuskipti.is
Björt upplýst ávaxta- og grænmetisdeild matvöruverslunar með snyrtilega raðuðum ávöxtum, þar á meðal eplum og appelsínum.
Alls konar spennandi verkefni fyrir Haga, meira um þau í næsta annál
Nokkrar mega næs uppfærslur fyrir Hagkaup
Nokkrar mega næs hönnunar- og tækniuppfærslur fyrir Hagkaup, þar á meðal glæsileg ný leitarvél sem skilur íslensku
Skjámynd af vefsíðu Visit Iceland
Visit Iceland á frönsku, nýjar og ferskar einingar og ný kortauppfærsla
Strandgolfvöllur með grænum brautum og bunkurum, með útsýni yfir kyrrlátt, blátt haf undir heiðskíru himni.
Könnun til íslenskra kylfinga fyrir Golfsamband Íslands um stafræna miðla sambandsins
Mynd af byggingu með Iðan merkinu á.
Iðan þarfagreining fyrir nýtt vefsvæði og vefur Iðan bransadagar
Skjámynd af App Apótekarans
App Apótekarans face ID ásamt öðrum uppfærslum
Skjámynd af Lif og Heilsu
Lyf og heilsa ný örugg greiðslugátt og fullt af nýju stöffi
Óhlutbundin byggingarlist með rúmfræðilegum formum og svörtum og hvítum sexhyrningum á ljósum bakgrunni. Textinn er „Árs- og sjálfbærniskýrsla 2023“.
Ofsalega fín ársskýrsla fyrir Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhús á heimsmælikvarða
Júní logo
Ýmsar uppfærslur og nýjungar fyrir fjölmarga viðskiptavini Júní sem eru í langtímasamstarfi við okkur. VÍS, Veitur, Apótekarinn, Lyf og heilsa, Íslandsstofa, Fjármálaráðuneytið - Vegir okkar allra, Harpa, Herjólfur, Ljósleiðarinn, styrkja.is, Reykjavíkurborg, Icelandair, Unicef, Skaginn og Almenni lífeyrissjóðurinn svo eitthvað sé nefnt.

Júníversinn víkkar, breikkar og blómstrar (vex og dafnar)

Árið 2024 var mjög viðburðaríkt fyrir Júníversinn okkar – því á meðan við unnum öll þessi verkefni saman vorum við að stækka við okkur, þroskast, dafna og blómstra. Júníversinn er lítið án fólksins sem skapar hann, svo það yljar okkur um hjartarætur í hvert sinn sem nýr hugarheimur bætist við hann.

Við fengum nýjan aðstoðarframkvæmdastjóra, hann Andra Úlfarsson – og James DeBlasse gekk til liðs við okkur sem nýr tækniþróunarstjóri eða CTO. Þar að auki bættust fjórir nýir forritarar, fjórir nýir hönnuðir og tveir nýir verkefnastjórar í hópinn.

James

6

Tæknistjóri

Júlía

5

Hönnuður (í fæðingarorlofi)

Fanney

4

Verkefnastjóri

Tinna

3

Hönnuður

Atli

2

Verkefnastjóri

Helgi

1

Forritari

Það er leikur að læra

Við bættum þó ekki bara við okkur fólki – heldur bætti fólkið okkar líka við sig þekkingu og miðlaði henni áfram. Fyrir utan það fórum við á ótal fyrirlestra, skrifuðum greinar í blöðin, heimsóttum ráðstefnur og tókum þátt í keppnum. 

Til að mynda hrepptum við íslensku vefverðlaunin fyrir vefinn okkar, juni.is, hjá Samtökum vefiðnaðarins (SVEF) árið 2023 í flokknum Fyrirtækjavefur ársins (meðalstór fyrirtæki)! Þar að auki voru verkefnin okkar tilnefnd til vefverðlauna í flokkunum fyrir Samfélagsvef ársins, App ársins, Opinberan vef ársins, Stafræna lausn ársins og Markaðsvef ársins.

Og síðast en ekki síst fengu Fanney og Eva vottanir sem Scrum-meistarar, þótt þær hafi raunar verið algjörir meistarar fyrir það. Núna er það bara skjalfest, þinglýst og lögfest.

Addý hélt snilldarerindi um Stafrænar og sjálfbærar lausnir morgundagins á fundi hjá Ský og hönnunarteymið okkar sótti Design Talks ráðstefnuna í Hörpu heim til að hlýða á frábæra fyrirlestra. 

Júlía skaust svo til Barcelona til þess að taka þátt í dómnefndarstörfum Art Directors Club Europe fyrir hönd FÍT, en hún dæmdi í flokknum Mobile & Interactive.

Maður með krullað hár brosir breitt og heldur á skírteini.
Júní er framúrskarandi fyrirtæki, aftur!
Toggi tók þátt í að laga til snúrur í fínu upphækanlegu borðunum okkar
Toggi tók þátt í að laga til snúrur í fínu upphækanlegu borðunum okkar
Hönd í hvítum ermi heldur á gegnsæju verðlaunapeningi með bláum áherslum á einfaldan bakgrunn, sem miðlar tilfinningu fyrir afreki og viðurkenningu.
Við fengum vefverðlaun, jess!
Tíu manna hópur stendur á sviði undir skærum fjólubláum ljósum og fagnar verðlaunaafhendingu.
Við svo geggjað fín að taka á móti vefverðlaunum
Tveir menn færa stóran pappakassa varlega upp þröngan, hvítmálmstiga í vel upplýstum stigahúsi, sem sýnir fram á fyrirhöfn og einbeitingu.
Risa sjónvarp borið upp af miklum fagmönnum
Tveir menn hengja stórt sjónvarp á trévegg í notalegu herbergi.
Risa sjónvarp sett upp af miklum fagmönnum
Fimm manns standa í kringum stóran snertiskjá og teikna á hann.
Og það var teiknað
Litrík krot og dúdlar þekja svarta töflu, með abstraktum andlitum, formum og handahófskenndum mynstrum í skærbleikum, gulum, rauðum og hvítum litum.
...svo úr varð mega fínt
Hönnunarteymið okkar tók marga góða rýnifundi yfir árið
Hönnunarteymið okkar tók marga góða rýnifundi yfir árið
Fjórir sitja við fundarborð með pappíra og fartölvu, einbeittir að skjá. Hundur liggur undir borðinu, umkringdur rifnum pappír á rauða dreglinum.
Þegar Toggi mætir á fundi
Hópur fólks í hvítum fötum situr kraftmikill í nútímalegri, notalegri stofu með bækur á kaffiborði.
Eitthvað skemmtilegt
Þrír einstaklingar í gangi á nútímalegri skrifstofu, allir standandi og vinna á fartölvum.
Alvöru standup með MMS
Þrír einstaklingar vinna við skrifborð með mörgum tölvuskjám í dimmum skrifstofurými.
Unnið fram í rauðan dauðan að uppfærslu fyrir Orkuskipti.is
Maður heldur kynningu fyrir hópi sitjandi í sófa í nútímalegum fundarsal með tveimur skjám, sem skapar samvinnuþýðan og grípandi andrúmsloft.
Ein af mímörgum vísindaferðum, af hverju er þetta kallað vísindaferðir?
Tvær konur í dökkum klæðum sitja leikandi fyrir, önnur í svörtu slæðu og hin í víðum hatti með gleraugu, og skapa þannig skemmtilega og listræna stemningu.
Hrikalegt hrekkjavökupartý
Hópur glaðlynds fólks í notalegu herbergi situr saman við sófa og skapar líflega og hátíðlega stemningu.
Stemning á hrekkjavöku
Þrír einstaklingar eru í notalegu eldhúsi með nútímalegum blæ.
Mynd af okkur í vísó, við elskum vísó, og okkur
Brosandi kona með gleraugu, í grænni peysu, situr í afslappaðri umgjörð.
Fanney og Addý mættu báðar í grænni peysu, geðveikt!
Vinningshafar í vísindaferð
Glæsilegir pöbbkviss vinningar afhentir
Fólk á skrifstofu pakkar spennt í litríka kassa.
Skemmtinefndin stóð sig vel í ár!
Kona í grænni peysu heldur á loðnum, hvítum og brúnum hundi og brosir hlýlega innandyra.
Addý + Toggi voru í Mogganum
Fundarherbergi með stórum skjám sem sýna tvær litríkar portrettmyndir.
Hönnuðirnir okkar fóru á Design Talks í Hörpu
Fyrirlesari flytur kynningu á sviði í ráðstefnusal með glæru sem sýnir texta og lógó.
Addý (the CEO) hélt mega fyrirlestur hjá SKÝ
Maður stendur í nútímalegum fundarherbergi og heldur kynningu.
Andri kynnti Frigg fyrir fullum sal, meira um Frigg í næsta annál
Fimm manna hópur, slakandi á í afslappaðri stofu með baunasekkjum og sófum.
Strákarnir spiluðu mikið FIFA, senda þá á eitthvað mót?
Hópur fólks stendur úti á sólríkum degi, umkringdur gróskumiklum grænum trjám.
Hið árlega júní partý Júní í Júní var mega skemmtilegt
Tvær konur brosa og faðmast úti.
Sigga Kling kom í partýið, hver annar!
Hópur glaðlynds fólks í eins fötum stillir sér upp úti og réttir upp hendur í fagnaðarlæti.
Júní run club tók þátt í Reykjavíkur maraþoninu
Karlmaður og kona sitja við tréborð með fartölvur og pappíra, bæði brosandi og horfa upp.
Þessi mynd mun hafa mikla þýðingu, meira í næsta annál
Fartölva með opnu textaskjali stendur í stórum sal með háum bogum og stórum gluggum, sem skapar andrúmsloft glæsileika og einbeitingar.
Júní í New York
Tveir einstaklingar í hlýjum fötum sitja við borð á skrifstofu.
Fengum nýja loftræstingu á skrifstofuna, þurftum eitthvað aðeins að stilla hana til
Toggi er mikil barnagæla
Toggi tók vel á móti börnum
Maður í peysu situr við borð með fartölvu og horfir á stóran skjá sem sýnir ýmsa litríka ávexti.
Bjarki okkar hélt vel heppnað demo hjá mjög svo góðum viðskiptavini
Hár, svartur hátalari stendur á appelsínugulum teppi við dökkan vegg.
Fengum karókí græjur
Fimm manna hópur stendur í grasi fyrir framan kletta og brosir í björtu sólarljósi.
Stjórnendateymið fór til Eyja sem hluti af mannbætandi stjórnendaþjálfun
Maður stendur við stóran skjá og sýnir litrík gröf í nútímalegri skrifstofu.
Einar Valur hélt fyrirlestur með kúlum, kúlurnar hans Einars
Hópur fólks situr í notalegu, vel upplýstu herbergi með viðargólfum og nútímalegri hönnun.
Héldum frábært demo fyrir Frigg, meira um það í næsta annál
Hrúga af hvítum bolum með orðinu „júní“ með svörtum stöfum efst.
Bættum við merch
Tveir einstaklingar standa við stóran skjá og sýna kynningu í nútímalegu skrifstofurými.
Jólastuðfundurinn var sérlega hátíðlegur í ár
Þrír einstaklingar eru að byggja turn með sykurpúðum og núðlum á borði, einbeittir sér af alefli.
Héldum keppni í að byggja turna úr spagettí og sykurpúðum, sem hluti af jólastuðfundi
Notaleg stofa með tónlistarmönnum sem spila.
Sjúklega kósý jólapartý þar sem Sigurður Guðmundsson lék ómþýða tóna
Sex manna hópur situr við kaffiborð í notalegri stofu, spjallar og borðar saman snarl.
Miklar og merkilegar umræður sköpuðust í jólapartýinu
Hópur fólks með börn safnast saman í hlýlegu, upplýstu herbergi með listasýningum, á meðan börn nálgast jólasveininn nálægt skreyttu jólatré í hátíðlegri og glaðlegri stemningu.
Árlegt jólaball Júní var einnig haldið fyrir þau minnstu
Espressovél fyrir atvinnuhúsnæði með þremur samstæðum espressóhausum á flísalögðum borðplötu.
Fengum nýja mega kaffivél! Nú höfum við þrjár
Gleðileg hópmynd á hátíðarhöldum, með brosandi fólki í formlegum klæðnaði.
Héldum „fríkin“ geðveika árshátíð á „Nasa“

Nýja árið hefst í Júní

Takk kærlega fyrir samstarfið á árinu sem er að líða, kæru vinir, og gleðilegt nýtt ár.

2024 var ótrúlega gjöfult og skemmtilegt ár hjá okkur – og það er að miklu leyti frábæru kúnnunum okkar að þakka. 

Við erum þakklát fyrir að hafa náð að anda djúpt og kjarna okkur aðeins núna um hátíðirnar. Við vonum að þið hafið sömuleiðis átt friðsæl, litrík og björt áramót.

Þið vitið svo auðvitað af okkur ef ykkur vantar einhverjar stafrænar flugeldasýningar – það má jú skjóta upp rakettum á netinu allan ársins hring. Svo skapa stafrænar rakettur heldur ekkert svifryk.

Við hlökkum til samstarfsins á nýja árinu.

Kærar nýárskveðjur,

Júní