2024
Kæru vinir, bestu þakkir fyrir frábært samstarf á árinu sem er að líða. Við vonum að hátíðirnar hafi verið ykkur gjöfular og friðsælar. Það var svo gaman að búa til stafræna snilld fyrir ykkur og við bíðum spennt eftir því að taka upp þráðinn á nýju ári.
Snilld ársins 2023
Árið 2023 var afar gott ár hjá okkur í Júní – og ekki bara í júní, heldur alla hina mánuðina líka. Við kláruðum ótal mörg spennandi og skemmtileg verkefni, gáfum út vefi, ýmsar snjallar lausnir, skrifuðum skýrslur og framkvæmdum verðmætar greiningar fyrir viðskiptavini okkar.
Við trúum á sam-viskuna sem sprettur upp úr sér-visku hvers og eins okkar, því þegar við vinnum saman sem ein heild verða til einstakir töfrar – og útkoman skilar sér í betra lífi með stórkostlegum stafrænum lausnum.

















Júníversinn vex + dafnar
Árið 2023 var mjög viðburðaríkt fyrir Júníversinn okkar – því á meðan við unnum öll þessi verkefni saman vorum við að stækka við okkur, þroskast, dafna og blómstra.
Við fengum nýjan framkvæmdastjóra og mannauðsstjóra, þær Addý og Evu. Stjórn Júní fékk sömuleiðis liðsauka, en Katrín Friðriksdóttir hagfræðingur, sem er búsett í LA, gerðist stjórnarmeðlimur á árinu.
Hönnunarteymið tók aldeilis út mikinn – því þar bættust við þær Ása og Júlía, en hún Lotta okkar gerðist leiðtogi hönnuða. Guðlaug tók svo einnig við sem nýr leiðtogi ráðgjafateymisins.
En svo fengum við líka alla þessa snillinga í lið með okkur. Júníversinn er lítið án fólksins sem skapar hann – svo það yljar okkur um hjartarætur í hvert sinn sem nýr hugarheimur bætist við hann.

James
5Tæknistjóri

Jón Ingi
4Forritari

Marianie
3Umsjón skrifstofu

Yuliya
2Gæða- & verkefnastjóri

Tumi
1Forritari
Ys, þys og allskonar í Júníversinum
Árið var annasamt hjá Júní á svo margan og skemmtilegan hátt. Við byrjuðum að halda sam-viskuhádegi þar sem við deilum ýmissi þekkingu með hvoru öðru, fórum vikulega saman í sjósund (eða að minnsta kosti þau okkar sem þola kuldann), við stunduðum jakkafatajóga af áfergju, héldum hakkaþon og vorum með nema frá Tækniskólanum í sumarstarfi.Svo fórum við til Parísar að kynna Júní og samstarf okkar við Stafrænt Ísland, og við héldum árshátíð í Hveragerði. Þar fórum við í fáránlega skemmtilega leiki með Iceland Activities og fengum bjórsmökkun í heimabyggð.
Einnig má nefna að við erum að mati einhverra framúrskarandi fyrirtæki og fengum viðurkenningu fyrir það.
Það er mikil frjósemi í Bolholtinu, greinilega, því starfsmenn fjölga sér eins og enginn sé morgundagurinn! 👼
Við erum líka komin með skrifstofuhund 🐶, hann Togga, en hann lætur okkur öllum líða svo vel og andrúmsloftið er fullt af hlýjum og góðum heimilisanda. Svo ekki sé nú minnst á bananabrauðið sem hún Marianie bakar fyrir okkur.
Þá stóðu yfir háværar viðgerðir utan á húsinu hjá okkur á árinu. Við erum svo glöð að þeim viðgerðum sé nú lokið svo við getum loksins unnið í ró og næði í fína húsinu okkar.











Það er leikur að læra
Hvað ungur nemur gamall temur, segir málshátturinn – en stundum virðist þó sem því gæti verið öfugt farið. Það skiptir þó kannski minna máli hver nemur og hver temur, svo lengi sem við erum að læra nýja hluti og fylla verkfærakassann okkar af nýjum hugmyndum, græjum og tólum.
Þess vegna fórum við á allskonar fræðandi fyrirlestra á árinu sem leið, og héldum sömuleiðis þó nokkra sjálf – bæði á Íslandi og á erlendri grundu. Við fórum líka á allskonar ráðstefnur, eins og mannauðsráðstefnuna CIPD í Manchester, og hittum svo líka ógrynnin öll af hæfileikaríku og forvitnu fólki í vísindaferðum sem við héldum fyrir háskólanema hjá Júní.






Nýja árið hefst í Júní
Takk fyrir samstarfið og árið sem er að líða, kæru vinir, og gleðilegt nýtt ár.
2023 var alveg ótrúlegt tímabil – og við erum þakklát fyrir að hafa náð að anda djúpt og kjarna okkur aðeins núna um hátíðirnar. Við vonum að þið hafið sömuleiðis átt friðsæl, litrík og björt áramót.
Þið vitið svo auðvitað af okkur ef ykkur vantar einhverjar stafrænar flugeldasýningar – það má jú skjóta upp rakettum á netinu allan ársins hring. Svo skapa stafrænar rakettur heldur ekkert svifryk.
Við hlökkum til samstarfsins á nýja árinu.
Kærar hátíðarkveðjur, Júní

