
Íslensk verðbréf
Heimsækja Vef
Viðskiptavinur
Íslensk verðbréf hf.
Tæknistakkur
Prismic, Next.js, Tailwind, Figma
Ný heild, einn vefur
Íslensk verðbréf er eigna- og sjóðastýringarfélag með hátt í 200 milljarða króna í stýringu og starfsemi í Reykjavík og á Akureyri. Félagið varð til í ársbyrjun 2025 þegar SIV eignastýring og ÍV sjóðir, tvö félög innan sömu samstæðu, sameinuðust undir nafni Íslenskra verðbréfa. Tvö félög, tveir vefir, ein ný heild.
Sameining sem þurfti að sjást
Sameining tveggja félaga kallar á meira en nýtt nafn. Vefirnir tveir voru byggðir á ólíkum grunni, með ólíkt efni og ólíkt yfirbragð, og hvorugur sagði söguna um nýja félagið. Á meðan svo er sendir félagið tvöföld skilaboð til markaðarins - og í eignastýringu, þar sem viðskiptin byggja á trausti, er það raunverulegur kostnaður. Viðskiptavinur sem leitar að nýja félaginu og lendir á gömlum vef fær ekki þá mynd sem sameiningin átti að skapa.
Verkefni Júní var að sameina vefina í einn og uppfæra mörkun Íslenskra verðbréfa samhliða, þannig að nýja félagið kæmi fram undir einu skýru merki frá fyrsta degi. Og það lá á: hver vika með tvo gamla vefi var vika þar sem sameiningin sást ekki út á við.




Mörkun og hönnun
Mörkun Íslenskra verðbréfa var uppfærð samhliða nýjum vef. Nýtt letur, uppfært merki og endurnýjaðir myndastílar skapa samræmt yfirbragð sem nýtist jafnt á vefnum og í öðru kynningarefni.
Tvö markmið lágu til grundvallar hönnuninni: auðvelt á að vera að kaupa áskrift í sjóðum og að færa fjármálaumfjöllun nær fólki með skýrum og aðgengilegum upplýsingum á mannamáli. Það birtist strax á forsíðunni með skilaboðunum „Gefðu þér tíma fyrir peningana þína“ og skýrri leið inn í sjóðina.
Vefurinn gegnir þannig tvíþættu hlutverki. Annars vegar er hann upplýsingaveita um þjónustu og sjóði, og hins vegar virkur hluti af söluferlinu þar sem leiðin frá áhuga yfir í áskrift er eins stutt og einföld og kostur er.


Vefþróun
Nýr vefur var byggður í Next.js með Prismic sem vefumsjónarkerfi. Einingasafn vefsins var hannað og forritað þannig að starfsfólk Íslenskra verðbréfa setur sjálft saman nýjar síður úr tilbúnum einingum, og sjóðayfirlitið sækir lifandi ávöxtunartölur beint úr gögnum félagsins, svo tölurnar á vefnum eru alltaf réttar án handavinnu.
Efni beggja eldri vefjanna var sameinað og endurskipulagt í nýju veftré. Í fjármálastarfsemi, þar sem upplýsingar þurfa að birtast rétt og á réttum tíma, skiptir máli að uppfærslan sé á valdi félagsins sjálfs en ekki háð utanaðkomandi aðila.
Skiptin sjálf voru útfærð þannig að eldri vefurinn hélst óhreyfður í loftinu á meðan sá nýi var smíðaður, og nýi vefurinn fór svo út í einu lagi - viðskiptavinir urðu einskis vör fyrr en hann fór í loftið. Verkefnið var unnið í nánu samstarfi við tækniteymi samstæðunnar sem félagið tilheyrir.


Verkefnastýring
Júní hélt utan um verkefnið frá upphafi til enda, allt frá skipulagi og efnisflutningi til hönnunar, þróunar og útgáfu. Allt ferlið tók rétt rúman mánuð. Á þeim tíma var mörkun uppfærð, nýr vefur hannaður og forritaður frá grunni og efni tveggja eldri vefja sameinað í einn.
Fyrir fyrirtæki í miðri sameiningu skipti mestu máli að hafa einn ábyrgðaraðila sem hélt utan um alla framkvæmdina. Það einfaldaði ákvarðanatöku, stytti boðleiðir og gerði kleift að koma nýjum vef í loftið án þess að verkefnið tæki athyglina frá daglegum rekstri
Útkoman
Nýr vefur Íslenskra verðbréfa fór í loftið á iv.is rétt rúmum mánuði eftir að verkefnið hófst. Þar mætir skýr mörkun, einföld leið í áskrift að sjóðum og sveigjanlegt vefumsjónarkerfi sem gerir teyminu kleift að halda efninu lifandi án aðkomu verktaka.
Verkefninu lauk þó ekki við útgáfu. Samstarfið heldur áfram með áframhaldandi þróun vefsins og smíði lendingarsíðna fyrir markaðsherferðir. Með Prismic getur teymið sett slíkar síður upp sjálft, á meðan Júní sér um að þróa vefinn áfram eftir því sem þarfirnar breytast.