360 banner image

360 Hotel

Heimsækja Vef

Viðskiptavinur

360 Hotel

Okkar hlutverk

Ráðgjöf, Hönnun, Forritun

Tæknistakkur

Figma, React, Next.js, Sanity CMS, Vercel, Mailchimp, resend.com, Mapbox

Um verkefnið og markmið þess

360° Hotel er lúxus boutique hótel á Suðurlandi sem leggur áherslu á einstaka upplifun, náttúru og hágæða þjónustu. Markmið verkefnisins var að hanna og þróa vef sem endurspeglar þessa upplifun – vef sem vekur forvitni, miðlar ákveðinni dulúð og undirstrikar lúxusinn sem gestir upplifa á staðnum.
Vefurinn þjónar bæði sem upplýsingavefur og innblástur fyrir gesti, en einnig sem verkfæri fyrir ferðaskrifstofur og ferðaráðgjafa sem skipuleggja ferðir fyrir vel efnaða ferðamenn.
Markhópurinn er að stærstum hluta erlendir ferðamenn, sérstaklega frá Bandaríkjunum og Bretlandi, sem leita að einstökum og hágæða ferðaupplifunum á Íslandi.

Hero section of 360 hotel website

Helstu markmið verkefnisins voru:

  • Hanna einn fallegasta hótel vef landsins
  • Skapa sterka tilfinningu fyrir mystique, ró og lúxus
  • Byggja vef sem er afburða hraður og notendavænn
  • Nýta nútímalegan tæknistakk sem styður framtíðarþróun
  • Skapa sterka sjónræna upplifun með áherslu á stórar myndir og myndskeið
  • Tryggja að efnisstjórnun sé einföld fyrir starfsfólk hótelsins
Screenshot of the interactive map on 360 hotel website

Lausnin

Lausnin var að byggja vef sem sameinar sterka sjónræna upplifun, minimalíska hönnun og mjög hraða tæknilega útfærslu.

Uppbygging vefsins byggir á endurnýtanlegum einingum og sniðmátum sem gera teymi hótelsins kleift að halda vefnum lifandi með nýju efni án þess að þurfa aðstoð forritara.

Helstu sniðmát sem hönnuð og þróuð voru: Forsíða, Herbergjasíður og detail síður fyrir hvert herbergi og svítu, Restaurant síða, Spa & Wellness síða, Almennar textasíður, Hafa samband síða og 404 síða.

Einnig var sett upp CMS uppbygging og leiðbeiningar fyrir starfsfólk hótelsins um hvernig best væri að halda utan um efni á vefnum.

Section with text and 3 images on 360 hotel website

Áskoranir

Skortur á efni á meðan verkefnið stóð yfir

Á meðan vefurinn var hannaður og þróaður var hótelið enn í endurbótum og því var lítið af raunverulegu myndefni til að vinna með. Þetta krafðist þess að hönnunin gæti virkað vel bæði með takmörkuðu efni og síðar með ríkulegu myndefni þegar hótelið opnaði.

Að skapa sterka sjónræna upplifun án þess að fórna hraða

Stórar myndir og myndskeið eru lykilatriði fyrir lúxus hótel vefi, en þau geta auðveldlega haft áhrif á hraða vefsins. Mikil áhersla var lögð á að finna jafnvægi milli sýnilegrar upplifunar og tæknilegs hraða.

Typography

Val á leturgerð var sérstaklega mikilvægt. Hún þurfti að vera bæði:

  • falleg og karaktersterk
  • en jafnframt auðlæsileg fyrir alþjóðlegan markhóp.

Animations og upplifun

Mikil vinna fór í að hanna hógværar og smekklegar animationar sem styrkja lúxus tilfinninguna án þess að verða truflandi eða hægja á vefnum.

Section of 360 website in dark mode showing culture family info
Hnaus Restaurant photo in 360 hotel

Áhersla á upplifun

Hönnun vefsins byggir á einfaldleika, stórum myndum og rólegri hreyfingu. Markmiðið var að gestir upplifi vefinn meira eins og ferðalag inn í stemningu hótelsins frekar en hefðbundinn upplýsingavef.

Notendaupplifunin var hönnuð þannig að:

  • notendur finni fljótt upplýsingar um herbergi, spa og veitingastað
  • vefurinn virki einstaklega vel á snjallsímum
  • efni sé auðvelt að skanna fyrir ferðaráðgjafa og agent-a

Aðgengismál (WCAG AA) voru einnig höfð til hliðsjónar við þróunina.

Utkoman

Útkoman er hraður og sjónrænt sterkur vefur sem miðlar upplifun hótelsins og styður bæði við markaðssetningu og bókanir.

Helstu afurðir verkefnisins voru:

Splash síða sem kynnti opnun hótelsins

Fullbúinn vefur

CMS uppsetning og efnisleiðbeiningar

Kennsla fyrir starfsfólk hótelsins

Senda skilaboð til hallo@juni.is