Júní og ISO 27001: Upplýsingaöryggi í forgrunni

Við viðurkennum það alveg: „upplýsingaöryggisstjórnunarkerfi“ er ekki orð sem fær hjartað til að slá hraðar. En við hjá Júní erum samt ansi stolt þessa dagana, því við vorum að fá ISO 27001 vottun frá SBcert í Svíþjóð. Hér segjum við aðeins frá því hvað það þýðir og af hverju okkur finnst þetta skipta máli.

Mynd af Áslaugu Öddu Maríusdóttur - Rekstrarstjóra hjá Júní

ÁSLAUG ADDA MARÍUSDÓTTIR

áslaug og james með iso vottunina

Hvað er þetta ISO 27001 eiginlega?

Í stuttu máli er ISO 27001 alþjóðlegur staðall um það hvernig fyrirtæki passa upp á upplýsingar. Hann snýst ekki um eitt tiltekið tól, heldur um að vinna skipulega: að finna veiku punktana, stoppa í götin þar sem þarf og greina áhættur til að koma í veg fyrir að þær verði að veruleika.

Markmiðið er að gögn séu aðeins aðgengileg þeim sem eiga að sjá þau, að þau séu rétt og að þau séu til staðar þegar á þarf að halda. Einfalt á blaði, aðeins flóknara í framkvæmd.

Af hverju að standa í þessu?

Því gögn eru verðmæt. Kerfin sem við smíðum halda utan um alls konar upplýsingar, oft persónulegar, og fólk á að geta treyst því að vel sé farið með þær.

Og ógnirnar eru raunverulegar. Netsvik og gagnagíslatökur eru ekki bara eitthvað sem gerist í bíómyndum þar sem hettuklæddir tölvuþrjótar pikka í myrkrinu. Oftast byrjar þetta á einhverju hversdagslegu: veiku lykilorði, einum óheppilegum smelli eða aðgangi sem gleymdist að loka. Þess vegna snýst öryggi jafn mikið um fólk og venjur eins og það snýst um tækni.

Hvernig gekk þetta fyrir sig?

Ferlið tók um hálft ár. Við byrjuðum á að rýna í rekstrarumhverfið og greina hagaðila: hverjir treysta á okkur og hvaða kröfur gera þeir til okkar, allt frá óskum viðskiptavina til laga og reglugerða. Svo kortlögðum við allt sem skiptir máli, frá kóða og skýjaþjónustum yfir í fartölvur og aðgangsheimildir, og mátum hvar áhætturnar lágu. Síðan tók við að skrifa niður stefnur og verklag, þjálfa allt teymið og taka okkur sjálf í gegn áður en óháður aðili mætti á svæðið.

Skemmtilegasta uppgötvunin? Við vorum að gera ansi margt vel nú þegar, við höfðum bara ekki markvisst verið að skrásetja það. Nú er það allt á einum stað og öryggi orðið hluti af því hvernig við vinnum, ekki eitthvað sem bætt er við í lokin.

Hvað þýðir þetta fyrir þig?

Ef þú ert viðskiptavinur Júní getur þú andað aðeins léttar. Gögnin þín eru meðhöndluð eftir alþjóðlega viðurkenndum staðli, verkferlarnir okkar eru skýrari en nokkru sinni fyrr og við erum orðin mun betri í að greina áhættur til að koma í veg fyrir að þær verði að veruleika. Ef eitthvað fer samt úr skorðum vitum við nákvæmlega hvernig við eigum að bregðast við.

Ert þú að velta fyrir þér svipaðri vegferð, eða langar þig bara að spjalla um öryggi í stafrænni vöruþróun? Heyrðu endilega í okkur. Við deilum glöð reynslunni (og lofum að tala ekki of mikið um staðla).