Annáll ársins 2022

NýjaJúní

Takk fyrir frábært samstarf á árinu sem er að líða. Við vonum að þið fáið kerti eða spil eða eitthvað álíka fallegt í jólagjöf – en ef allt bregst getið þið auðvitað heyrt í okkur. Það var svo gaman að búa til stafræna snilld fyrir ykkur að við bíðum spennt eftir því að taka upp þráðinn á nýju ári. Gleðilega hátíð.

Annáll ársins 2022

Afrek ársins 2022

Árið 2022 var viðburðarríkt hjá okkur í Júní – og ekki bara í júní, heldur alla hina mánuðina líka. Við kláruðum mörg spennandi og skemmtileg verkefni, gáfum út vefi og framkvæmdum verðmætar og nytsamlegar greiningar fyrir viðskiptavinina okkar. Við erum sannfærð umað hið mannlega geti komið fram í stafrænum lausnum og kappkostum við að vera hugrökk í hönnun til að finna leiðina að hjarta viðskiptavinarins.

Hérna eru nokkur af verkefnunum sem við tókum okkur fyrir hendur á árinu sem er að líða:

Skjámyndir af nýjum vef Hagkaups – forsíða með snyrtivörum og vörulistar með leikföngum og daglegum vörum.
Stór, stór vefverslun fyrir Hagkaup
Íslandsstofa, ný mörkun og vefur
Nýtt brand og nýr vefur fyrir Íslandsstofu
Ýmsar umbætur fyrir Hörpu
Betrumbætur fyrir Hörpu
Þarfagreining fyrir LIve lífeyrissjóð
Greiningaverkefni fyrir Betri samgöngur
Skjámynd af vefsíðu Visit Iceland
Stór, stór vefur fyrir VIsit Iceland
Nýr Júní.is jeiiiii
Skjáskot af símum vefsíðu lyf og heilsu
Vefverslun fyrir Lyf & heilsu
Glás af verkefnum fyrir Stafrænt Ísland
Vefur um Orkuskipti fyrir Samtök Iðnaðarins
Virkilega fínn vefur fyrir Veitur
Ítarleg greiningarvinna fyrir LSR
Framúrskarandi góður vefur fyrir Unicef
Og auðvitað fullt, fullt, fullt af öðrum verkefnum

Skemmtanir + hátíðir

Við köllum stofuna okkar stundum Júníversinn, því saman getum við sem vinnum á Júní skapað svo gott sem heila stafræna veröld af snilld. Eitt stórt sköpunarverk. Miklihvellur hvað? Starfsfólkið okkar er lífskrafturinn sem heldur hjarta stofunnar gangandi, svo við reynum að gera skemmtilegu vinnuna okkar ennþá skemmtilegri með því að skipuleggja allskonar stuð saman. Í ár fórum við til dæmis í árshátíðarferð til Lissabon og máluðum bæinn Júní-rauðan. En það var bara toppurinn á ísjakanum. Passið ykkur bara, þið sem eruð að stýra rosalega stórum skipum sem heita nöfnum sem byrja á T.

Föngulegur hópur fyrir utan aðal höllina í Portúgal
Fagleg vínsmökkun á gala kvöldinu
Gala dinnerinn í Lisabon, næs
Trendsetter
Alvöru trendsetters
Hópur ellefu einstaklinga, brosandi og í hversdagslegum klæðum, er ljósmyndaður í nútímalegu skrifstofuumhverfi með trésmíði og svörtum stólum.
Vel heppnað hakkaþon
Líflegur hópur fólks safnast saman við tréborð í notalegu, nútímalegu rými.
Ein af fjölmörgum vísindaferðum ársins
Hrikalega vel heppnað hrekkjavökupartý
Uppfinningafundur um gildi Júní
Jólaglögg
Við stofnuðum starfsmannafélag
Mynd af fólki í fundarherbergi með fartölvur
Unnum að (og unnum) fjölmörgum útboðum
Æðislegt innflutningspartý í Bolholti 8
Við bjuggum til merch! Sokka, boli, músamottur og tote poka

Fyrirlestrar + námskeið

Sælla er að gefa en þiggja, en við gerðum bæði þegar kemur að hugviti og fróðleik. Við héldum fræðandi fyrirlestra og þáðum nýja þekkingu á námskeiðum og ráðstefnum innanlands og erlendis.

Hópur fólks situr í nútímalegu stofurými með sófum og teppi, virðist afslappaður og áhugasamur.
Morgunfundur með Festa, samfélagslegábyrgð
Gummi talaði (frá Miami) á IceWeb ráðstefnunni 2022
Góður gestur
Fjórum fræknum vefverðlaunum fagnað
Hönnunarhittingur
Ebba kenndi okkur góð ráð gegn matarsóun
Gummi talar á loftslagsráðstefnu Festu og Reykjavíkurborgar
Þórhildur með innlegg fyrir fasteignasala um rafrænar þinglýsingar
Linda kennir verkefnastjórnun hjá Akademías af einskærri snilld
Guðlaug okkar hélt frábæran morgunfyrirlestur hjá Dokkunni
Mætt á JsConf í Búdapest, Stefán forritunarstjóri enn trendsetter

Júníversinn vex og dafnar

Nýjir snillingar bættust í starfsmannahópinn á árinu.

Arna

1

Forritari

Nýja árið byrjar í Júní

Gleðilegt nýtt ár, kæru vinir. Takk fyrir árið sem er að líða. Við vonum að þið getið haft það litríkt og bjart um áramótin. Við sjáumst á því næsta með látum. 

Þið vitið svo bara af okkur ef ykkur vantar einhverjar stafrænar flugeldasýningar á næsta ári. Við erum búin að skjóta þó nokkrum í loftið á síðastliðnu ári – og við erum stolt af afrakstrinum.